Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 04. maí 2021 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ansu Fati í stóra aðgerð - Ferillinn gæti endað snemma
Mynd: Getty Images
Ansu Fati, ungstirni Barcelona og spænska landsliðsins, hefur samþykkt að gangast undir aðgerð á hné sem gæti endað ferilinn hans snemma.

Hluti af brjóskinu í vinstra hné Fati verður fjarlægt vegna slæmra hnémeiðsla sem hafa verið að angra hann í marga mánuði.

Þetta er afar sjaldgæf aðgerð en Jamie Redknapp fór einnig í hana á sínum ferli. Redknapp þurfti að leggja skóna snemma á hilluna og á erfitt með að skokka í dag.

Samuel Umtiti fór einnig í svipaða aðgerð þegar hann var yngri. Hann varð einn af bestu miðvörðum heims í kjölfarið en hefur nú misst dampinn og lendir reglulega í meiðslum vegna slæms hnés.

Það er þó jákvætt að körfuboltastjörnur á borð við Chris Paul og Kobe Bryant fóru í sömu aðgerð og héldu áfram að gera góða hluti.
Athugasemdir
banner
banner
banner