Inter á eftir Guehi - Man Utd sýnir miðjumanni Chelsea áhuga - Stórlið sýna miðjumanni Lille áhuga
Hlín Eiríks: Kíktum í balletkennslu í gær í staðinn fyrir æfingu
Steini: Hún er bara orðin gömul og þreytt
Thelma Karen: Gærdagurinn eitt mesta bull sem ég hef lent í á ævinni
Emilía Kiær: Geggjaður bónus að geta fengið sitt fyrsta landsliðsmark
Birnir Snær: Það er alvöru framleiðsla í Garðabænum
Sjáðu það helsta úr ítalska: Napoli fór á toppinn og Albert skoraði
Sjáðu það helsta úr spænska: Real Madrid vann El Clasico
Ragnar Bragi: Sýnir að klúbbnum sé alvara
Heimir setur titlasöfnun til hliðar: Núna er að búa til eitthvað
Jökull: Endar ekki í efstu þremur nema hafa unnið fyrir því
Örvar tvöfaldaði markafjölda sinn: Ég var óheppinn þá
Höskuldur: Hefur verið geðshræringavika
Ólafur Ingi: Eins og þú sérð þá er þetta frábært lið
Pablo Punyed um framtíðina: Það kemur í ljós
Matti Villa: Geggjaður endir á frábæru tímabili og mínum ferli
Sölvi um Pablo og Matta Villa: Þetta eru algjörir sigurvegarar
Túfa um Val: Miðað við allt sem ég er búinn að gera á ég þetta ekki skilið
Aron Sig stendur við ummæli sín: Sjá allir að við erum að fara taka yfir
Elmar Atli sár og svekktur: Að taka þessa ákvörðun í þessari stöðu er óskiljanlegt
Var afskaplega drjúgur fyrir KR í úrslitaleikjunum
banner
   þri 04. maí 2021 21:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áslaug Munda: Við ætlum að sýna að fyrsta sætið er okkar
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mjög skemmtilegur leikur af okkar hálfu, gekk vel og við náðum að spila vel þegar leið á leikinn," sagði Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, eftir 9-0 sigur gegn Fylki í kvöld.

Munda skoraði tvö mörk og lagði upp eitt mark. Hún spilaði á hægri kanti í leiknum í dag.

Lestu um leikinn: Breiðablik 9 -  0 Fylkir

„Við ætluðum að setja alvöru hörku í leikinn, byrja mótið almennilega og sýna hvað í okkur býr og við náðum að gera það. Ég er búin að bíða eftir þessum leik lengi lengi. Staðan á mér er mjög góð og er klár í mótið."

Hvernig líður þér á kantinum?

„Mér líður mög vel á kantinum, ég er sóknarmaður að upplagi og fór bara aftar þegar Steini setti mig aftar. Ég get leyst báðar stöður. Ég veit ekki hvort ég verði áfram á kantinum, það er Villa að velja. Ég er til í allt."

Markmið Mundu er að haldast heil en hvað finnst henni um að Breiðabliki sé spáð 2. sæti í deildinni?

„Persónulega finnst mér fínt að okkur sé spáð 2. sæti, þá er minni pressa á okkur. Við ætlum að sýna að fyrsta sætið er okkar," sagði Munda að lokum.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner