Fotbolti.net
27.09.26 - 17:32
Helgi Inguson

16 ára með þrennu - „Þegar ég var komin með eitt gat ég ekki hætt"

Auglýsing
Bríet Fjóla Bjarnadóttir.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Mér líður ógeðslega vel, þetta er mjög skemmtilegur leikur," sagði Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, eftir sigur gegn Stjörnunni. Bríet sem er einungis 16 ára gömul gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 - 1 Stjarnan
„Mér fannst við vera með þetta. Við ákváðum fyrir leikinn að við ætluðum að keyra á þetta, við gerðum það og það virkaði ótrúlega vel. Við gerðum nokkrar skiptingar í hálfleik og það gaf okkur auka kraft til þess að klára þetta," sagði Bríet um leikinn.

Bríet skemmti áhorfendum í dag með frábærum töktum og glæsilegum mörkum. Hún var eðlilega sátt með eigin frammistöðu.

„Ég er mjög sátt með eigin frammistöðu. Ég fann það fyrir leik að ég væri að fara að skora. Svo þegar ég var komin með eitt gat ég ekki hætt, ég þurfti að ná þrennunni.

Mér fannst ég allt önnur í þessum leik en ég hef verið í sumar og er mjög sátt með það,"
bætti Bríet við að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.