Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. maí 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
Memphis Depay skoðar húsnæði í Barcelona
Memphis Depay.
Memphis Depay.
Mynd: Getty Images
Mundo Deportivo segir að Memphis Depay hafi verið í íbúðarleit í Barcelona. Talið er að Ronald Koeman, stjóri Barcelona, vilji fá hollenska landsliðsmanninn.

Memphis er hjá Lyon í Frakklandi en hann tikkar í boxin sem Börsungar leita eftir. Hann er fjölhæfur, reynslumikill og með auga fyrir mörkum.

Memphis er sagður hafa verið í Barcelona í síðustu viku með fjölskyldu sinni og vinum.

Umboðsmaður hans var í Barcelona í byrjun apríl. Þrátt fyrir áhuga frá Juventus, Inter og Atletico Madrid er talið að metnaður Memphis sé að spila fyrir Barcelona.

Memphis er 27 ára og er fyrrum leikmaður PSV og Manchester United. Hann hefur skorað 23 mörk í 62 landsleikjum fyrir Holland.
Athugasemdir
banner
banner