Fotbolti.net
19.09.26 - 12:25
Brynjar Ingi Erluson

Borja kveður Völsung (Staðfest) - „Gerði magnaða hluti á Húsavík“

Borja kveður Völsung (Staðfest) - „Gerði magnaða hluti á Húsavík“
Canon

Mynd: Völsungur

Borja Martin verður ekki áfram með Völsung á næstu leiktíð, en félagið staðfesti brottför hans í dag.
„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"
TENGT EFNI

„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"

Spánverjinn tók við Völsungi snemma í sumar þegar liðið var aðeins með tvö stig í deildinni og fátt sem benti til þess að því tækist að halda sæti sínu í Lengjudeildinni.

Undir hans stjórn snerist dæmið hins vegar algjörlega við. Völsungur vann sex af síðustu átta deildarleikjum sínum og tókst með ótrúlegum hætti að bjarga sér frá falli í lokaumferðinni og setti félagsmet í stigastöfnun sem urðu 26 talsins.

Borja verður þó ekki áfram hjá félaginu. Hann hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn og er því á förum.

„Borja kom til okkar snemma á tímabilinu og gerði magnaða hluti á Húsavík. Í Borja eignaðist Völsungur vin til frambúðar og þökkum við honum kærlega fyrir sitt starf á Húsavík og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni,“ segir í tilkynningu Völsungs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.