19.09.26 - 12:39
Brynjar Ingi Erluson
Porro entist í nítján mínútur - Manzambi opnaði markareikninginn

Johan Manzambi fagnar fyrsta marki sínu fyrir Aston Villa

Mynd: EPA

Porro meiddist snemma leiks

Spænski bakvörðurinn Pedro Porro sneri aftur í byrjunarlið Tottenham gegn Aston Villa í dag, en þurfti að fara af velli eftir aðeins nítján mínútur.
Porro hafði misst af síðustu tveimur leikjum Tottenham vegna meiðsla en sneri beint aftur í byrjunarliðið í dag.
Endurkoman entist þó aðeins í nítján mínútur áður en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla og kom Archie Gray inn á í hans stað.
Það voru slæmar fréttir fyrir Tottenham sem lenti síðan undir undir lok fyrri hálfleiks.
Svissneski landsliðsmaðurinn Johan Manzambi, sem var að byrja sinn fyrsta leik fyrir Villa síðan hann kom frá Freiburg í sumar, tók upp þráðinn frá HM og opnaði markareikning sinn fyrir félagið.
Hann fékk boltann inn í teignum frá Boubacar Kamara og skoraði örugglega. Villa leiddi því 1-0 í hálfleik og var á leið í að sækja sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Johan Manzambi scores on his first Premier League start! ????@AstonVilla are ahead against @SpursOfficial at half-time ???? https://t.co/sSNzqQ6VRy pic.twitter.com/khLR7lsQFD
— Premier League (@premierleague) September 19, 2026

Porro meiddist snemma leiks

Mynd: EPA