Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 11:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Af hverju er leikur í enska klukkan 14 á mánudegi?
Joao Pedro og félagar í Chelsea mæta Nottingham Forest
Joao Pedro og félagar í Chelsea mæta Nottingham Forest
Mynd: EPA
Það er athyglisvert að í dag er leikur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00. Chelsea og Nottingham Forest mætast þá.

Leikurinn var færður vegna þátttöku Forest í undanúrslitum Evrópudeildarinnar, þar sem liðið mætir Aston Villa. Leikur Chelsea og Forest var upphaflega á dagskrá laugardaginn 2. maí en það þurfti að finna nýjan tíma þar sem Forest og Villa mættust síðastliðinn fimmtudag.

Á þessari leiktíð hafa slík tilfelli oft leitt til þess að leikjum er komið fyrir klukkan 14:00 á sunnudegi. Það er hins vegar alltaf frí á Bretlandseyjum fyrsta mánudaginn í maí og það gaf ensku úrvalsdeildinni meira svigrúm en ella.

Niðurstaðan er sú að leikur Chelsea og Forest fer fram snemma í dag og fer leikur Everton og Manchester City fram í kvöld.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 34 21 8 5 69 32 +37 71
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Brighton 36 14 11 11 51 42 +9 53
7 Bournemouth 36 12 17 7 55 52 +3 53
8 Brentford 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Fulham 36 14 7 15 44 49 -5 49
11 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 65 -40 18
Slapp
banner