Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 15:09
Elvar Geir Magnússon
Baulað á Chelsea sem er 0-2 undir gegn varaliði Forest
Hinn 18 ára gamli Jesse Derry var borinn af velli á börum.
Hinn 18 ára gamli Jesse Derry var borinn af velli á börum.
Mynd: EPA
Matz Sels varði vítaspyrnu Cole Palmer.
Matz Sels varði vítaspyrnu Cole Palmer.
Mynd: EPA
Það er hálfleikur í leik Chelsea og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni og staðan er 0-2 eftir viðburðaríkan fyrri hálfleik. Stuðningsmenn á Stamford Bridge bauluðu á sína menn þegar þeir gengu til búningsklefa.

Chelsea er í Evrópubaráttunni en er í níunda sæti eftir fimm tapleiki í röð. Bráðabirgðastjórinn Calum McFarlane stýrir liðinu eftir að Liam Rosenior var rekinn.

Nottingham Forest er í fallbaráttu en er samt að stórum hluta með varalið í þessum leik þar sem leikurinn kemur milli leikja gegn Aston Villa í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Þrátt fyrir það var Forest búið að skora tvisvar eftir stundarfjórðungs leik. Taiwo Awoniyi sem er að spila sinn 100. leik fyrir Forest skoraði með skalla á 2. mínútu og Igor Jesus tvöfaldaði forystuna út vítaspyrnu eftir galið peysutog Malo Gusto innan teigs.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Chelsea vítaspyrnu eftir að hinn 18 ára gamli Jesse Derry fékk þungt höfuðhögg og var borinn af velli á börum. Atvik sem leit hrikalega út.

Cole Palmer fór á vítapunktinn en Matz Sels varði. Þetta var aðeins önnur vítaspyrnan sem fer forgörðum hjá Palmer í deildinni, í 20 tilraunum, en í fyrsta sinn sem Sels ver víti í deildinni.

Chelsea 0 - 2 Nott. Forest (hálfleikur)
0-1 Taiwo Awoniyi ('2 )
0-2 Igor Jesus ('15 , víti)
0-2 Cole Palmer ('45 , Misnotað víti)

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 21 9 5 69 32 +37 72
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 10 12 52 46 +6 52
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner