Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 19:18
Brynjar Ingi Erluson
Hearts færist nær titlinum - Elías Rafn og félagar töpuðu dýrmætum stigum
Elías Rafn og félagar töpuðu stigum í titilbaráttunni
Elías Rafn og félagar töpuðu stigum í titilbaráttunni
Mynd: EPA
Tómas Bent Magnússon og hans menn í Hearts færast nær skoska meistaratitlinum eftir að liðið vann 2-1 endurkomusigur á Rangers í kvöld.

Eyjamaðurinn var að vísu ekki með Hearts vegna kinnbeinsbrots en áætlað er að hann verði frá út tímabilið.

Liðsfélagar hans eru því staðráðnir í að klára tímabilið með stæl fyrir Tómas, en Hearts lenti marki undir gegn Rangers og kom síðan til baka í síðari hálfleik til að loka leiknum.

Nú er titilbaráttan orðin að tveggja hesta veðhlaupi því Hearts er á toppnum með 76 stig, sjö stigum meira en Rangers þegar þrjár umerðir eru eftir. Celtic er í öðru með 73 stig.

Hearts og Celtic mætast einmitt í lokaumferðinni þann 16. maí, en fyrst mun Hearts mæta Motherwell og Falkirk.

Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland gætu hafa kastað danska meistaratitlinum frá sér í kvöld er liðið gerði 3-3 jafntefli við Viborg.

Midtjylland kom tvisvar til baka gegn Viborg og komst síðan yfir á 80. mínútu en Viborg bjargaði stigi á lokamínútunum og skemmdi í leiðinni fyrir Midtjylland sem er tveimur stigum frá toppnum þegar tvær umferðir eru eftir.

Elías lék allan leikinn í marki Midtjylland sem á eftir að spila við Nordsjælland og Bröndby. Topplið AGF á eftir að mæta Bröndby og Viborg.
Slapp
banner
banner