Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Fylkir skoraði tvö í seinni og er með fullt hús stiga
Lengjudeildin
Benedikt Daríus setur boltann yfir Marvin í markinu
Benedikt Daríus setur boltann yfir Marvin í markinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Benedikt er kominn með tvö í Lengjudeildinni
Benedikt er kominn með tvö í Lengjudeildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 2 - 0 Vestri
1-0 Benedikt Daríus Garðarsson ('48 )
2-0 Kári Sigfússon ('58 )
Lestu um leikinn

Fylkismenn eru í góðu formi og komnir með tvo sigra af tveimur mögulegum eftir að hafa lagt bikarmeistara Vestra að velli, 2-0, á tekkVellinum í kvöld.

Fylkir var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og líklegra til að skora en Vestri fékk líka sín færi.

Imran Mehanovic, leikmaður Vestra, fór meiddur af velli á 22. mínútu og kom Sergine Fall inn í staðinn. Samkvæmt lýsingu Fótbolta.net var Mehanovic sendur með sjúkrabíl á spítala vegna hnémeiðsla.

Staðan í hálfleik var markalaus en Fylkir náði að ganga frá leiknum á fyrstu þrettán mínútum síðari hálfleiks. Kári Sigfússon sendi Benedikt Daríus Garðarsson í gegn sem síðan vippaði yfir Marvin Darra Steinarsson sem kom út úr markinu.

Hrikalega svekkjandi fyrir Vestra sem hafði stuttu áður komist í dauðafæri sem Chris-Albin Mörfelt klúðraði.

Kári tvöfaldaði forystuna tíu mínútum síðar. Skot fór í varnarmann og út á Kára sem setti boltann í vinstra hornið. Mark og stoðsending hjá Kára í dag.

Bjarki Steinsen og Benedikt Daríus voru báðir nálægt að bæta við. Benedikt skaut rétt framhjá og þá átti Bjarki fyrirgjöf sem fór í slá og út.

Fylkismenn sigldu þessu örugglega heim og unnu annan sigur sinn í röð. Þeir eru á toppnum með fullt hús en Vestri með eitt stig.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    HK 2 2 0 0 6 - 2 +4 6
2.    Þróttur R. 2 2 0 0 5 - 1 +4 6
3.    Fylkir 3 2 0 1 5 - 2 +3 6
4.    ÍR 3 1 1 1 10 - 9 +1 4
5.    Afturelding 3 1 1 1 7 - 7 0 4
6.    Njarðvík 3 1 1 1 2 - 2 0 4
7.    Leiknir R. 3 1 1 1 3 - 5 -2 4
8.    Grindavík 3 0 3 0 3 - 3 0 3
9.    Völsungur 2 0 2 0 1 - 1 0 2
10.    Vestri 2 0 1 1 1 - 3 -2 1
11.    Grótta 2 0 0 2 2 - 6 -4 0
12.    Ægir 2 0 0 2 1 - 5 -4 0
Slapp
banner
banner