Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Rannsókn hafin á hegðun Neymars
Mynd: EPA
Brasilíska félagið Santos sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem staðfest var að rannsókn væri hafin á hegðun Neymars í garð Robinho Jr. á æfingu liðsins í gær.

Föruneyti Robinho Jr. sendi formlega kvörtun til Santos þar sem Neymar er ásakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi í garð leikmannsins unga.

Neymar er sagður hafa slegið Robinho Jr. í andlitið og fellt hann á æfingu ásamt því að hafa hreytt fúkyrðum í átt að honum. Neymar baðst afsökunar í búningsklefanum, en teymi Robinho Jr. taldi það ekki nóg.

Santos hefur nú staðfest að félagið hefði hafið rannsókn á atvikinu.

„Santos FC greinir frá því, samkvæmt skipun forsetans, að innri rannsókn hafi verið hafin vegna atviks milli Neymars og Robinho Jr. á æfingasvæði félagsins þann 3. maí síðastliðinn. Lögfræðideild félagsins ber ábyrgð á framkvæmd rannsóknarinnar,“ segir í yfirlýsingunni.

Robinho Jr. og teymi hans hafa einnig óskað eftir því að funda með stjórninni varðandi mögulega riftun á samningnum. Þessi 18 ára gamli leikmaður er talinn gríðarlegt efni, en hann er sonur fyrrum landsliðsmannsins Robinho.

Sonurinn skrifaði undir framlengingu við Santos í byrjun ársins og er nú samningsbundinn til 2030 og með 100 milljóna evra riftunarákvæði. Félög á borð við Inter, Manchester United og Chelsea eru meðal félaga sem hafa áhuga og munu þau væntanlega fylgjast mjög náið með þessu sérstaka máli sem er komið upp hjá honum og Santos.
Slapp
banner
banner
banner