Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 11:23
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk: Óásættanlegt tímabil sem má ekki endurtaka sig
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool segir að tímabilið hafi verið óásættanlegt hjá liðinu. Liverpool tapaði gegn Manchester United í gær og hefur tapað átján leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

„Ég er ekki hér til að vera með afsakanir. Þetta tímabil hefur verið vonbrigði, það hefur verið óásættanlegt og erfitt. Við getum ekki vorkennt sjálfum okkur, við þurfum að leggja á okkur vinnu og snúa þessu við. Sjá til þess að þetta gerist ekki aftur á næsta tímabili," segir Hollendingurinn.

Liverpool hefur ekki innsiglað Meistaradeildarsæti sitt enn.

„Við höfum tapað of mörgum leikjum sem ríkjandi meistarar og getum ekki sætt okkur við það. Það þarf að leggja á sig mikla vinnu fyrir næsta tímabil. Við þurfum núna að tryggja það að við verðum í Meistaradeildinni á næsta tímabili, bæði fyrir félagið fjárhagslega og líka því við viljum keppa við bestu lið Evrópu."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 34 21 8 5 69 32 +37 71
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Brighton 36 14 11 11 51 42 +9 53
7 Bournemouth 36 12 17 7 55 52 +3 53
8 Brentford 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Fulham 36 14 7 15 44 49 -5 49
11 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 65 -40 18
Slapp
banner
banner