Fotbolti.net
04.05.26 - 21:47
Brynjar Ingi Erluson

„Vitum ekki enn hversu mikilvægt þetta mark verður“

„Vitum ekki enn hversu mikilvægt þetta mark verður“
Canon

Mynd: EPA

Arsenal leiðir kapphlaupið um Englandsmeistaratitilinn eftir 3-3 jafntefli Everton og Manchester City í kvöld. Jamie Carragher, spekingur á Sky Sports, segir að þetta eina stig gæti þó reynst dýrmætt fyrir City.
England: Man City tapaði stigum í ótrúlegum leik í Liverpool-borg
TENGT EFNI

England: Man City tapaði stigum í ótrúlegum leik í Liverpool-borg

Man City er nú fimm stigum á eftir Arsenal og aðeins með einn leik til góða.

Liðið þarf að treysta á að Arsenal tapi stigum í síðustu umferðunum og vinna alla leiki sína.

Carragher segir að titilbaráttunni sé ekki endilega lokið.

„Tilfinningin er aðeins betri þegar þú nærð í jöfnunarmark, en ég vona að ég hafi rétt fyrir mér þegar ég segi frá því þegar Liverpool og Manchester City voru að berjast um titilinn árið 2014. Man City gerði jafntefli á heimavelli gegn Sunderland sem var í fallbaráttu og þá kom seint jöfnunarmark. Tilfinningin var þannig eins og þeir höfðu tapað tveimur stigum, en þetta eina stig vann deildina fyrir þá.“

„Við vitum ekki hversu mikilvægt þetta mark verður, en það virðist eins og allir séu mjög vonsviknir,“
sagði Carragher á Sky Sports.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.