Fotbolti.net
04.06.20 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Margir reynsluboltar skipta yfir í Smára

Kári Ársælsson.

Kári Ársælsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Smári, nýtt félag í 4. deildinni, hefur verið að manna leikmannahóp sinn undanfarna daga.

Margir leikmenn sem hafa spilað með Augnabliki í 3. deildinni undanfarin ár eru nú farnir í Smára.

Á meðal leikmanna sem hafa skipt yfir í Smára eru Ellert Hreinsson, Kári Ársælsson og Sigmar Ingi Sigurðarson fyrrum leikmenn Breiðabliks.
Hjörvar Hermannsson, Hlynur Hauksson, Karl Brynjar Björnsson og Sveinbjörn Jónasson fyrrum leikmenn Þróttar hafa einnig allir skipt yfir í Smára.

Smári mætir Njarðvík í 1. umferð Mjólkurbikarsins í Fagralund klukkan 20:00 annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.