„Ég er að spennt að koma aftur í landsliðið og spila leiki. VIð erum ótrúlega góður hópur og mjög góðar vinkonur," sagði Hildur Antonsdóttir þegar hún ræddi við Fótbolta.net fyrir æfingu landsliðsins í Kraká í Póllandi í dag.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spila á morgun mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Afar mikilvægt er að sækja góð úrslit í þessum leik.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spila á morgun mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Afar mikilvægt er að sækja góð úrslit í þessum leik.
Ísland vann 1-0 þegar liðin mættust heima fyrir en búast má við öðruvísi leik á morgun þar sem Úkraína þarf bara sigur. „Ég býst við þeim aðeins agressívari fram á við. Þær eru með mjög góða leikmenn sem fara hratt upp og þær verja teiginn sinn líka rosalega vel."
„Við vitum hvað þær er góðar í og hvar við finnum svæði á móti þeim. Við höfum verið að æfa það hérna."
Lífið gott en heldur möguleikunum opnum
Hildur var að klára sitt annað tímabil með Madrid CFF í spænsku úrvalsdeildinni. Hún spilaði alla deildarleiki liðsins á tímabilinu.
„Ég er alls ekki ánægð með liðsframmistöðuna. Við enduðum í níunda sæti og við hefðum getað endað ofar. Við spiluðum góðan fótbolta en úrslitin fóru ekki með okkur," sagði Hildur.
Hún segir lífið á Spáni býsna gott. „Það er æðislegt að búa á Spáni. Ég elska Madríd, alveg frábær borg. Það er erfitt að finna betri stað held ég."
„Sólin hefur strítt mér síðustu vikur, 35 gráður og svolítið heitt," sagði Hildur létt en hún útilokar samt sem áður ekki að breyta til í sumar.
„Ég er að skoða mína möguleika, hvað ég ætla að gera. Ég hef verið í tvö ár þarna og var í tvö ár í Hollandi. Ég er opin fyrir nýjum upplifunum þrátt fyrir að það sé búið að vera geggjað að búa þarna. Ég er bara að skoða mín mál."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.























