Fotbolti.net
04.06.26 - 11:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Spenntur fyrir sumrinu hjá Haukum - „Klárlega eitt besta samfélagsmiðlaefnið á landinu"

Kristófer í leik með Haukum árið 2019.

Kristófer í leik með Haukum árið 2019.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Kristófer Jónsson er uppalinn hjá Haukum og er sem stendur án félags eftir að hafa verið í þrjú ár hjá ítalska félaginu Triestina.

Kristófer fylgist mjög vel með Haukum og hafa bræður hans verið í stórum hlutverkum. Haukar eru sem stendur í toppsæti 2. deildar og hafa unnið fimm leiki í röð.
Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu
TENGT EFNI

Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu

„Ég fylgist sérstaklega vel með hjá Haukum þar sem ég er uppalinn," sagði Kristófer við Fótbolta.net. Hann var í ítarlegu viðtali sem birt var í gær.

„Eldri bróðir minn (Ísak) hefur verið lykilmaður og fyrirliði í liðinu í mörg ár og mjög spennandi tímar framundan á Ásvöllum með komu Gauja Lýðs. Hann kemur auðvitað inn með gríðarlega reynslu og mikið Haukahjarta. Svo fær hann með sér fleiri reynslubolta í bæði þjálfarateymið og liðið sjálft sem verður ógeðslega gaman að fylgjast með í sumar."

„Maður finnur það að það er mikil stemning yfir Haukunum og gaman að sjá hversu öflugir og vinsælir þeir eru inni á samfélagsmiðlunum, en yngri bróðir minn Viktor sér um þá."

„Hann hefur heldur betur keyrt upp alla þessa stemningu með geggjuðum vídeóum og efni inni á bæði Instagrammi og Youtube síðum Hauka. Mæli með að allir skoði það þar sem þetta er klárlega eitt besta fótbolta samfélagsmiðlaefnið á landinu leyfi ég mér að segja,"
sagði Kristófer.


Viktor Jónsson sér um samfélagsmiðla Hauka.

Viktor Jónsson sér um samfélagsmiðla Hauka.

Canon

Mynd: Aðsend

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar14+1729
2Selfoss14+626
3Kári14+1524
4Fjölnir14+521
5Víkingur Ó.14-421
6Kormákur/Hvöt14+1120
7Dalvík/Reynir14020
8KFA14+617
9Magni14-1715
10Þróttur V.14-713
11Hvíti riddarinn14-813
12KFG14-2413
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.