Fotbolti.net
26.07.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Haaland stýrði víkingaróðri í brúðkaupi Donnarumma

Haaland stýrði víkingaróðri í brúðkaupi Donnarumma
Canon

Mynd: EPA

Norski Víkingaróðurinn sló í gegn á HM í sumar en Norðmenn hafa fengið einhvern innblástur frá Íslendingum.

Íslendingar eru þekktir fyrir Víkingaklappið sem heyrðist einnig hjá einhverjum stuðningsmönnum í stúkunni á leikjunum á HM í sumar.
Erling Haaland stýrði stundum róðrinum eftir sigurleiki þar sem hann barði á trommur á meðan aðrir leikmenn sátu í grasinu og réru með stuðningsmönnum.

Haaland hefur ekki fengið nóg af róðrinum en hann var í brúðkaupi hjá Gianluigi Donnarumma, liðsfélaga sínum hjá Man City, þar sem hann stýrði róðrinum og aðrir brúðkaupsgestir tóku þátt.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.