„Mér líst bara vel á þetta. Við vitum út í hvað við erum að fara og við þurfum að eiga góðan leik á morgun," sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson þegar hann ræddi við Fótbolta.net fyrir æfingu í Kraká fyrr í dag.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spila á morgun mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Afar mikilvægt er að sækja góð úrslit í þessum leik.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spila á morgun mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Afar mikilvægt er að sækja góð úrslit í þessum leik.
„Við þurfum að klára þennan leik með góðri spilamennsku."
Steini segir undirbúninginn hafa gengið vel en liðið kom saman í Póllandi í byrjun vikunnar og hefur verið að æfa í Kraká undanfarna daga. Eftir æfingu dagsins flutti liðið sig svo yfir til Mielec þar sem leikurinn á morgun fer fram.
Sveindís ekki með
Sveindís Jane Jónsdóttir, lykilmaður í íslenska liðinu, er fjarri góðu gamni í þessu verkefni vegna meiðsla. Það er skarð fyrir skyldi. Sveindís var valin í upprunalega hópinn en það var ljóst frekar snemma að hún gæti ekki verið með.
„Sveindís hefur alltaf verið lykilleikmaður fyrir okkur og skipt okkur miklu máli," sagði Steini.
„Það kemur maður í manns stað. Við þurfum alltaf að læra það að það eru ekki alltaf allar með. Við erum klár í að takast á við það."
Steini segist ekki hafa verið vongóður þó hún hafi verið valin í hópinn. „Nei, við vorum bara að bíða eftir niðurstöðum úr einni myndatöku sem hún átti eftir að fara í. Við biðum eftir því og þegar sú niðurstaða var komin vissum við að við þyrftum að gera þessa breytingu."
Það var vitað á æfingunni í morgun hvernig fyllt yrði í skarðið. „Við erum búin að ákveða hvernig við ætlum að gera þetta á morgun. Við erum með nokkra möguleika í kringum það. Við stillum upp liði á morgun og sú sem kemur inn fyrir hana, það er hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta."
Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






















