Derby County 1 - 1 Nott. Forest
0-1 Joe Lolley ('12 )
1-1 Chris Martin ('98 )
Rautt spjald: Martyn Waghorn, Derby County ('94)
0-1 Joe Lolley ('12 )
1-1 Chris Martin ('98 )
Rautt spjald: Martyn Waghorn, Derby County ('94)
Einum leik er lokið í ensku Championship-deildinni í dag. Derby fékk Nottingham í heimsókn en liðin eru bæði á efri helmingi töflunnar.
Joe Lolley skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu fyrri gestina og þannig var staðan fram í uppbótartíma seinni hálfleiks. Á áttundu mínútu hans jafnaði framherjinn Chris Martin leikinn fyrir Derby með svokölluðu flautumarki. Skömmu eftir markið var leikurinn flautaður af.
Í uppbótartíma fékk varamaðurinn Martyn Waghorn að líta beint rautt spjald hjá Derby. Með sigri hefði Nottingham farið upp í 3. sæti deildarinnar og haldið pressu á WBA og Leeds í toppsætum deildarinnar. Liðið er nú sjö stigum frá Leeds í toppsætinu og Derby er markatölunni frá því að vera í umspilssæti. Fullt af leikjum hefjast klukkan 14:00 í Championship-deildinni.
Að jafna manni færri á 7. mínútu í uppbótartíma er merki um karakter! Grannaslagur @dcfcofficial og @NFFC endar 1:1. Enn möguleiki á að komast í umspilið.
— Vidir Sigurdsson (@vidirsig) July 4, 2020
Athugasemdir