Fylkir vann 2-1 sigur á Fjölni í Pepsi Max-deildinni í dag.
Valdimar Þór Ingimundarson kom Fylki yfir úr vítaspyrnu og skoraði Hákon Ingi Jónsson annað markið. Sigurpáll Mellberg minnkaði muninn fyrir Fjölni undir lokin.
Fylkismenn fögnuðu öðru marki sínu með því að fara til Einars Ásgeirssonar ljósmyndara .net og hirðljósmyndara Fylkis og fagna með honum.
Einar er 81 árs sá gamall og var skemmt við þetta eins og sést á myndunum sem fylgja fréttinni.
Textalýsingu frá leiknum í Grafarvogi má lesa hérna.
Athugasemdir