Nýrri varatreyju enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool var lekið í dag en hún fær misjafna dóma af stuðningsmönnum.
Heimatreyja liðsins er í takt við treyjur síðustu ára og er ekkert umdeilt við hana en í dag birtust myndir af nýrri varatreyju liðsins og má alveg deila um hana.
Hún er aðeins öðruvísi en síðustu ár og er alveg hægt að týnast í henni; svona bókstaflega.
Mynstrið á henni gæti dáleitt andstæðinga Liverpool en treyjuna má sjá hér fyrir neðan.
Í fyrsta lagi er ég fáránlega ánægður með þennan varabúning.
— Hrafn Kristjánsson 🇺🇦 (@ravenk72) July 4, 2022
Í öðru lagi á að nota þessa búninga í öllum mikilvægum leikjum, andstæðingar dáleiðast bara. pic.twitter.com/tuyr6dHiiy
Ég held þeir verði bara sjóveikir og kasti upp. Þetta finnst mér alveg agalegur búningur.
— Júlíus Sigfússon (@jullifus) July 4, 2022
Athugasemdir