Fotbolti.net
16.09.26 - 15:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Þórs gegn Zalgiris: Fjórir sem hafa spilað í Bestu

Sverrir Páll Ingason hefur spilað talsvert í Bestu deildinni í sumar.

Sverrir Páll Ingason hefur spilað talsvert í Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Þór tekur á móti Zalgiris í Evrópukeppni unglingaliða í dag. Spilað er á VÍS vellinum og hefst leikurinn klukkan 16:00.

Um er að ræða fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar. Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki í fyrra og Zalgiris vann í sama aldursflokki í Litháen. Seinni leikurinn fer fram í Litháen 14. október.

Þjálfarar Þórs eru búnir að velja byrjunarliðið sitt og eru fjórir leikmenn sem hafa spilað í Bestu deildinni í sumar í liðinu.
Ungir Þórsarar gætu mætt Chelsea
TENGT EFNI

Ungir Þórsarar gætu mætt Chelsea

Lestu um leikinn: Þór U19 0 - 0 FK Zalgiris U19
Það eru þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson og Sverrir Páll Ingason sem hafa spilað talsvert með meistaraflokki í sumar, Peter Ingi Helgason sem hefur fengið mínútur og Smári Signar Viðarsson sem hefur komið inn á í einum leik. Kjartan Ingi Friðriksson er með fyrirliðabandið.

Byrjunarlið Þór U19

  • 1. Lucas Vieira Thomas (m)
  • 2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
  • 4. Jósef Orri Axelsson
  • 7. Hákon Kári Jónsson
  • 8. Kjartan Ingi Friðriksson
  • 9. Peter Ingi Helgason
  • 10. Ólíver Sesar Bjarnason
  • 14. Smári Signar Viðarsson
  • 15. Natan Dagur Fjalarsson
  • 18. Sverrir Páll Ingason
  • 23. Kári Jónsson

Byrjunarlið FK Zalgiris U19

  • 95. Dominykas Cekavicius (m)
  • 21. Dominykas Aršulis
  • 24. Erik Tucinskij
  • 27. Vakaris Berenta
  • 39. Danielius Velicka
  • 47. Simas Grabauskas
  • 48. Benas Bruzga
  • 56. Tomas Grigaliunas
  • 65. Vakaris Bradunas
  • 68. Adomas Zavadskas
  • 91. Dovydas Eidukaitis
Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki í fyrra.

Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki í fyrra.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net

Ásbjörn Líndal er sá leikmaður í liðinu sem hefur spilað mest með meistaraflokki í sumar.

Ásbjörn Líndal er sá leikmaður í liðinu sem hefur spilað mest með meistaraflokki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.