Fotbolti.net
16.09.26 - 16:30
Kári Snorrason

Aðeins of snemmt fyrir Hjört og Kristian

Á að baki 13 A-landsleiki.

Á að baki 13 A-landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Kristian Hlynsson og Hjörtur Hermannsson voru hvorugir í landsliðshóp Íslands sem var tilkynntur fyrr í dag. Báðir eru þeir frá vegna meiðsla og voru ekki taldir leikhæfir fyrir verkefnið.

„Þessi gluggi kom aðeins of snemma fyrir þá,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn

„Það hafa verið mikil samskipti síðustu daga bæði við Kristian og Twente. Hann vildi ólmur koma en á endanum mældi læknateymi Twente ekki að mæla með því að velja hann og var hann því skilinn eftir heima,“ sagði Arnar og ræddi því næst um Hjört.

„Hjörtur er búinn að vera frábær fyrir okkur en er búinn að eiga í erfiðleikum með líkamann og þarf á smá pásu að halda í þessum glugga,“ sagði Arnar jafnframt á blaðamannafundinum.

Liðið verður sömuleiðis án Sverris Inga Ingasonar í verkefninu en hann sleit krossband í sumar. Ísland mætir Lúxemborg, Búlgaríu og Eistlandi í tvígang í komandi verkefni í C-deild Þjóðadeildarinnar.
„Þarf á smá pásu að halda.“

„Þarf á smá pásu að halda.“

Canon

Mynd: Mummi Lú

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.