þri 04. ágúst 2020 10:10
Magnús Már Einarsson
Man Utd gæti keypt Sancho og Grealish
Powerade
Jack Grealish
Jack Grealish
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin eru mætt með allt það helsta úr slúðrinu. Njótið!



Willian (31) hefur hafnað nýjum tveggja ára samningi hjá Chelsea. Wilian er í viðræðum við Arsenal sem er tilbúið að bjóða honum þriggja ára samning. (Guardian)

Arsenal vill einnig fá Philippe Coutinho (28) frá Barcelona og Thomas Partey (27) frá Atletico Madrid. (Times)

Pierre-Emerick Aubameyang vill að Arsenal kaupi Ousmane Dembele (23) frá Barcelona. (Le10Sport)

Manchester United er að færast nær því að fá Jadon Sancho (20) frá Borussia Dortmund en hann er nálægt því að gera fimm ára samning. (Mail)

Manchester United ætlar að bíða þar til í lok félagaskiptagluggans með að fá Jack Grealish (24) frá Aston Villa. (Mail)

Inter hefur samþykkt að kaupa Alexis Sanchez (31) frá Manchester United á 13,5 milljónir punda. (Mail)

Frank Lampard, stjóri Chelsea, ætlar að selja fimm varnarmenn í sumar. Lampard vill kaupa Ben Chilwell (23) vinstri bakvörð Leicester. (Times)

Chelsea þarf að gera Chilwell að dýrasta varnarmanni sögunnar til að fá hann í sínar raðir. (Mirror)

PSG vill selja miðjumanninn Idrissa Gueye en Wolves hefur áhuga. (Le10 Sport)

AC Milan og Bayer Leverkusen eru að berjast um Ben Godfrey (22) varnarmann Norwich en hann kostar 30 milljónir punda. (Sky Sports)

Lazio, Tottenham, RB, Leipzig, Everton og PSV Eindhoven vilja öll fá suður-kóreska varnarmanninn Kim Min-Jae (23). (Gazzetta dello sport)

Aston Villa, Leeds United, Newcastle United og West Ham hafa öll áhuga á James McCarthy (29) miðjumanni Crystal Palace. (90min)
Athugasemdir
banner
banner
banner