Fotbolti.net
04.08.22 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Haukar yfirgefa Hafnarfjörð á meðan nýtt gervigras er lagt

Haukar yfirgefa Hafnarfjörð á meðan nýtt gervigras er lagt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Verið er að skipta út gervigrasinu á Ásvöllum í Hafnarfirði og á meðan munu meistaraflokkar Hauka spila í öðrum bæjarfélögum. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið um 24. ágúst.

Haukar eiga heimaleik í Lengjudeild kvenna á morgun en sá leikur verður spilaður á gervigrasinu fyrir utan Reykjaneshöllina, Nettóhöllina.

Karlaliðið spilar í 2. deild og mun spila skráðan heimaleik gegn Völsungi á laugardag á OnePlus vellinum á Álftanesi.

„Nú er unnið að því að skipta út eldra gervigrasi á aðalkeppnisvelli félagsins. Núverandi gervigras var lagt á völlinn árið 2015 og því var komin tími á endurnýju grassins. Fyrirtækið Metatron sér um verkið líkt og árið 2015. Nauðsynlegt er talið að skipta út gervigrasi á 5 til 7 ára fresti, en gríðarleg notkun er á keppnisvelli félagsins allt árið um kring, frá morgni til kvölds," segir á samfélagsmiðlum Hauka.

„Stöðug þróun er í gerð gervigrass, en með tilkomu nýs gervigrass minnkar meiðslahætta leikmanna auk þess sem gæði knattspyrnunnar aukast," segir á samfélagsmiðlum Hauka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.