11.11.26 - 13:00
Kári Snorrason
Líklegt byrjunarlið U21 - Löskuð miðja og Amin á bekknum?

Amin baðst undan viðtali fyrr í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrirliðinn ekki með vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjaði gegn Frökkum en var á bekknum gegn Sviss og Færeyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skorað tvö í síðustu tveimur með U21.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Amin baðst undan viðtali fyrr í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska U21 landsliðið mætir Grikklandi á Pepsí-vellinum í Laugardal í hádeginu á morgun. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í umspili upp á að komast á EM í Serbíu og Albaníu næsta sumar.
Flautað verður til leiks klukkan 13:00. KSÍ og bakhjarlar KSÍ bjóða á leikinn.

TENGT EFNI
U21 hópurinn sem mætir Grikkjum um sæti á EM - Fyrirliðinn ekki með
Stór skörð eru höggvin í miðju liðsins þar sem fyrirliðinn Eggert Aron Guðmundsson er frá vegna meiðsla og liðsfélagi hans hjá Brann, Kjartan Már Kjartansson, er sömuleiðis ekki í hópnum vegna meiðsla.
Fótbolti.net spáir því að Tómas Orri Róbertsson, leikmaður FH, og Logi Hrafn Róbertsson, leikmaður Varnamö, komi inn á miðjuna í þeirra stað.
Ágúst Orri Þorsteinsson kemur aftur inn í hópinn en hann gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni þar sem hann hafði nýlega verið keyptur til Excelsior í Hollandi. Honum er jafnframt spáð byrjunarliðssæti.
Undirritaður mætti á Pepsí-völlinn fyrr í dag og tók viðtöl við leikmenn. Amin Cosic baðst undan viðtali og gefur það vísbendingu um að hann gæti verið á bekknum á morgun.
Viktor Bjarki Daðason er spáð á bekknum en Lúðvík Gunnarsson og Óli Kristjáns hafa veðjað á Benóny Breka Andrésson, leikmann Stockport, til þess að byrja frammi ásamt Daníel Tristan í síðustu tveimur leikjum og skoraði Benóny bæði gegn Sviss og Færeyjum.