Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. ágúst 2022 21:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Gary Martin bjargaði stigi fyrir Selfoss
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur V. 1 - 1 Selfoss
1-0 Hans Kamta Mpongo ('5 )
1-1 Gary John Martin ('78 )
Rautt spjald: Reynir Freyr Sveinsson, Selfoss ('92) Lestu um leikinn

Fimmtánda umferð Lengjudeildarinnar hófst í kvöld í Vogunum þar sem heimamenn tóku á móti Selfossi.


Selfyssingar hófu tímabilið af krafti en hafa tapað fjórum af stíðustu fimm leikjum sínum. Þróttur var á botninum með fimm stig fyrir leik kvöldsins.

Hans Mpongo kom Þrótti yfir eftir aðeins fimm mínútna leik, varnarlína Selfyssinga steinsofnaði og eftirleikurinn auðveldur fyrir Mpongo.

Selfyssingar voru sterkari aðilinn í leiknum en það var ekki fyrr en undir lok leiksins sem Gary Martin jafnaði metin af miklu harðfylgi.

Reynir Freyr Sveinsson í liði Selfoss fékk tvö gul og þar með rautt á sex mínútna kafla undir lok leiksins.


Athugasemdir
banner
banner
banner