Arnór Sig: Að spila gegn Real Madrid og Roma er draumur
Auglýsing

Arnór Sigurðsson á æfingu á Kópavogsvelli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór í búningi CSKA.

Mynd: CSKA Moskva

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson er staddur hér á landi við æfingar með U21-landsliðinu. Það hefur verið mikið í gangi hjá Arnóri að undanförnu en rússneska stórliðið CSKA Moskva keypti á dögunum þennan 19 ára leikmann frá Norrköping í Svíþjóð.
Fótbolti.net ræddi við Arnór, sem er kantmaður, fyrir æfingu á Kópavogsvelli í dag og spurði út í skiptin yfir til Moskvu.

„Þetta hefur verið langt ferli og það er fínt að þetta kláraðist. Það er kostur að koma aðeins til Íslands núna og hitta vinina áður en maður fer út,\" segir Arnór.
„Þetta verður alvöru áskorun og það er bara geggjað. Þetta er þvílíkt spennandi og stór klúbbur. Það segir manni mikið þegar svona stórt félag leggur svona mikið á sig til að fá mann. Það heillaði mig líka hversu mikinn áhuga þeir sýndu.\"
Gerir hann sér vonir um alvöru spiltíma strax í byrjun?
„Auðvitað fer ég með háleit markmið þarna inn. Maður verður að hafa þau. Fyrstu vikurnar fara í að koma mér fyrir, finna íbúð og þetta praktíska. Svo er það bara undir mér komið hversu mikinn spiltíma ég fæ.\"
Ef maður stendur sig kemur svona möguleiki upp
Dregið var í Meistaradeildina í síðustu viku en CSKA Moskva lenti í riðli með Real Madrid og Roma. Tilhugsunin að spila gegn þeim kitlar óneitanlega.
„Það er draumur allra fótboltamanna að spila á móti þessum liðum á þessum völlum. Það er heldur betur eitthvað sem manni dreymir um og stefnir á að gera,\" segir Arnór.
Hann hefur verið að taka miklum framförum og frammistaða hans í Svíþjóð vakti mikla athygli.
„Ég fékk þvílíkt traust í Svíþjóð og nýtti minn séns. Það skiptir máli þegar þér er hent svona ungum inn. Ef maður stendur sig þá kemur svona möguleiki upp.\"
Undir mér komið að komast í A-landsliðið
Annar Íslendingur er í CSKA, Hörður Björgvin Magnússon. Það hlýtur að vera gott að hafa annan Íslending?
„Já það hjálpar mikið, að geta komist inn í alla hluti og verið væntanlega mikið saman utan vallar. Það er mjög gott að hafa hann þarna.\"
Var Arnór að gera sér vonir um að vera í A-landsliðshópnum, fyrsta hópnum hjá Erik Hamren?
„Auðvitað er það draumurinn. En ég er ekki búinn að vera mikið með U21-landsliðinu og þarf fyrst að sanna mig hér. Það er bara undir mér komið að koma mér í A-landsliðið með frammistöðu minni á vellinum.\"
Ekki leiðinlegt að taka bolta á sandinum
Þegar grúskað var í myndasafni Fótbolta.net fundust gamlar myndir af Arnóri þegar hann var yngri að sparka í bolta á Langasandi á Akranesi. Þær myndir má sjá hér að neðan. Var hann mikið í fótbolta á Langasandi?
„Já, það kom fyrir. Það er ekki leiðinlegt að taka bolta á sandinum,\" segir Arnór en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Arnór í boltaleik á Langasandi árið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir