Fotbolti.net
05.02.21 - 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Elísabet Eir og Freyja til HK (Staðfest) - Sara framlengir

Freyja Aradóttir.

Freyja Aradóttir.

Canon

Mynd: HK

Kvennaboltinn
HK hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Þær Elísabet Eir Hjálmarsdóttir og Freyja Aradóttir eru mættar í Kórinn. Þá hefur Sara Freysdóttir framlengt samning sinn við félagið.
Freyja er miðjumaður sem kemur til HK frá Fylki. Hún er átján ára gömul og lék einn leik í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.

Elísabet er bakvörður eða kantmaður sem kemur til HK frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni. Elísabet, sem er nítján ára gömul, lék með Þrótti R. árið 2018.

Sara er fædd 1999 og lék þrettán leiki og skoraði í þeim eitt mark þegar HK endaði í 2. sæti 2. deildar síðasta sumar.


Sara Freysdóttir

Elísabet Eir Hjálmarsdóttir með Þrótti 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.