Fotbolti.net
05.02.21 - 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Graziano Pelle til Parma (Staðfest)

Graziano Pelle er mættur til Parma

Graziano Pelle er mættur til Parma

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Parma hefur gengið frá samningum við Graziano Pelle en hann kemur á frjálsri sölu frá Shangond Luneng í Kína.
Pelle, sem er 35 ára gamall, sprakk út í ensku úrvalsdeildinni með Southampton frá 2014 til 2016.

Hann gerði þar 30 mörk í 81 leik og var á endanum seldur til Kína þar sem hann spilaði í fjögur ár áður en hann varð samningslaus undir lok síðasta árs.

Pelle var orðaður við Juventus og Inter en er nú búinn að semja við Parma eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Ítalski framherjinn þekkir vel til hjá Parma en hann spilaði þar 14 leiki og skoraði 2 mörk frá 2011 til 2012.

Pelle hefur einnig spilað fyrir Feyenoord, Cesena, Crotone, Sampdoria, Catania Lecce og AZ Alkmaar á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.