Fotbolti.net
05.02.21 - 14:16
Magnús Már Einarsson

Jörundur Áki nýr þjálfari U17 og U16 karla (Staðfest)

Jörundur Áki Sveinsson

Jörundur Áki Sveinsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki Sveinsson hefur verið ráðinn þjálfari U17 og U16 ára landsliðs karla.

Jörundur hefur undanfarin ár verið þjálfari U17 og U16 ára landsliðs kvenna en hann mun halda því starfi áfram.

Hann tekur nú við U17 og U16 ára liði karla af Davíð Snorra Jónassyni sem var á dögunum ráðinn þjálari U21 árs landsliðsins.
Davíð Snorri Jónasson verður aðstoðarmaður Jörundar með U17 og U16 karla en Þórður Þórðarson verður honum til aðstoðar með U17 og U16 ára lið kvenna. Þórður verður jafnframt áfram við stjórnvölinn hjá U19/U18 kvenna.

Ólafur Ingi Skúlason hefur tekið við U19/U18 landsliði karla, en Þorvaldur Örlygsson lét af störfum í lok árs 2020. Ólafur Ingi mun einnig þjálfa U15 landslið kvenna, en honum til aðstoðar með U19/U18 liðið verður Lúðvík Gunnarsson.

Lúðvík Gunnarsson þjálfar U15 landslið karla ásamt því að sjá um Hæfileikamótun N1 og KSÍ, og þar verða þjálfarar annarra landsliða honum til aðstoðar.
Lúðvík Gunnarsson

Lúðvík Gunnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Snorri Jónasson

Davíð Snorri Jónasson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þórðarson

Þórður Þórðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason

Ólafur Ingi Skúlason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.