Fotbolti.net
05.02.21 - 14:21
Elvar Geir Magnússon

Jörundur og Þórður aðstoða Davíð á EM (Staðfest)

Jörundur Áki og Þórður Þórðarson.

Jörundur Áki og Þórður Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Davíð Snorri Jónasson tók nýlega við af Arnari Þór Viðarssyni sem þjálfari U21 landsliðs karla.

Nú hefur verið staðfest hverjir verða í teymi hans í lokakeppni EM í mars.

Jörundur Áki Sveinsson og Þórður Þórðarson vera Davíð Snorra til aðstoðar á mótinu. Nýr aðstoðarþjálfari U21 karla verður síðan ráðinn þegar því móti er lokið.

Stefán Gíslason, fyrrum landsliðsmaður, hefur verið orðaður við stöðuna til frambúðar. Stefán er fyrrum þjálfari Hauka og Leiknis.
Markmannsþjálfari U21 karla verður Fjalar Þorgeirsson en Halldór Björnsson fylgdi Arnari Þór Viðarssyni í A-landsliðið.

Davíð Snorri var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag.

<b>Útvarpsþátturinn</b> - Davíð Snorri, U21 og lenging mótsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.