Fotbolti.net
05.02.21 - 20:07
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool kaupir Kaide Gordon frá Derby (Staðfest)

Liverpool kaupir Kaide Gordon frá Derby (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Liverpool hafa fest kaup á enska táningnum Kaide Gordon frá Derby County en kaupverðið er talið nema um 4 milljónum punda.
Gordon er aðeins 16 ára gamall en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Derby í ensku B-deildinni á þessari leiktíð er hann kom inná undir lok leiks í 4-0 sigri á Birmingham í lok desember.

Hann var valinn besti leikmaður unglingaliðs Derby á síðustu leiktíð og þykir með efnilegustu leikmönnum Englands.

Liverpool hefur verið í viðræðum við Derby um kaup á leikmanninum síðustu vikur og er hann nú formlega genginn til liðs við ensku meistarana en Derby greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

„Ég vil þakka öllum hjá Derby County og hjá unglingaliðinu sem hafa hjálpað mér á minni vegferð til þessa. Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef það væri ekki fyrir þjálfara- og læknalið Derby. Ég óska félaginu góðs gengis í framtíðinni," sagði Gordon á Twitter.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.