05.02.21 - 10:51
Magnús Már Einarsson
Martin Rauschenberg áfram á láni hjá HK (Staðfest)

Martin Rauschenberg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Martin Rauschenberg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur fengið danska varnarmanninn Martin Rauschenberg aftur á láni frá Stjörnunni.
Rauschenberg var á láni hjá HK síðari hlutann á síðasta tímabili en þá spilaði hann átta leiki og skoraði eitt mark.
Rauschenberg var á láni hjá HK síðari hlutann á síðasta tímabili en þá spilaði hann átta leiki og skoraði eitt mark.
Hinn 29 ára gamli Rauschenberg kom fyrst til Stjörnunnar árið 2013 og varð Íslandsmeistari með liðinu ári síðar.
Eftir að hafa spilað í Svíþjóð sneri Rauschenberg aftur í Stjörnuna árið 2019 og spilaði 19 leiki í Pepsi Max-deildinni það sumarið.
Á síðasta tímabili fékk Rauschenberg ekki tækifæri með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni en hann fór síðan í HK um mitt sumar.

Martin Rauschenberg til HK❗️
— HK (@HK_Kopavogur) February 5, 2021
HK hefur fengið varnarmanninn öfluga Martin Rauschenberg að láni frá Stjörnunni út keppnistímabilið 2021.
Martin lék 8 leiki með HK seinni hluta Íslandsmótsins í fyrra ásamt einum bikarleik og stóð sig með mikilli prýði.
Áfram HK❤️ pic.twitter.com/q9mTjanG71