05.02.21 - 06:00
Victor Pálsson
Tumi Guðjónsson í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Tumi Guðjónsson hefur krotað undir samning við Hauka í 2. deild karla en þetta kemur fram í tilkynningu Fram í kvöld.
Tumi er fæddur árið 1999 en hann spilaði alls sex leiki með Fram í öllum keppnum á síðasta ári.
Haukar hafa því fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi átök og er Tuma þakkað fyrir vel unnin störf í færslu Fram.
Tumi á að baki 43 meistaraflokksleiki en þeir eru flestir fyrir Vængi Júpíters frá 2017 til 2019.
Í þessum 43 leikjum hefur Tumi skorað eitt mark.