Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 05. mars 2021 22:36
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Njarðvík vann KFS
Kenneth Hogg skoraði tvö fyrir Njarðvík
Kenneth Hogg skoraði tvö fyrir Njarðvík
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Njarðvík 4 - 2 KFS
1-0 Kenneth Hogg ('38 )
2-0 Ólafur Bjarni Hákonarson ('40 )
3-0 Kenneth Hogg ('43 )
3-1 Magnús Sigurnýas Magnússon ('60 )
3-2 Ásgeir Elíasson ('70, víti )
4-2 Hlynur Magnússon ('74 )

Njarðvík vann annan sigur sinn í riðli 1 í B-deildinni í Lengjubikarnum í kvöld er liðið lagði KFS að velli, 4-2.

Heimamenn gerðu þrjú mörk á fimm mínútuna kafla undir lok fyrri hálfleiks en Kenneth Högg gerði tvö mörk og Ólafur Bjarni Hákonarson eitt.

Magnús Sigurnýjas Magnússon og Ásgeir Elíasson náðu að minnka muninn niður í eitt mark áður en Hlynur Magnússon gerði fjórða mark Njarðvíkur gerði út um leikinn.

Lokatölur 4-2 og Njarðvík með 6 stig eftir tvo leiki en KFS án stiga í neðsta sæti riðilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner