Fotbolti.net
05.04.20 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ighalo gefur í skyn að hann myndi semja við United

Ighalo gefur í skyn að hann myndi semja við United
Canon

Mynd: Getty Images

Odion Ighalo er að láni hjá Manchester United frá kínverska félaginu Shanghai Shenhua. Ighalo hefur þótt standa sig vel hjá Englandi og vilja margir stuðningsmenn halda kappanum áfram hjá félaginu.
Ighalo var með svokallað spurt og svarað eða Q&A á föstudag á Twitter-reikningi sínum.

Notandi sendi honum spurninguna: 'Myndiru elska að vera áfram hjá Manchester United ef þú færð samningstilboð um að vera áfram?'

Ighalo svaraði: 'Að sjálfsögðu'.

United hefur neitað að tjá sig um stöðu Ighalo eins og stendur. Lánssamningur Ighalo gildir út þetta leiktímabil. (31. júní)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.