Fotbolti.net
18.11.26 - 14:51
Fótbolti.net

Ísland hlýtur háttvísisverðlaun frá UEFA

Frétt af heimasíðu KSÍ:

Ísland hlýtur háttvísisverðlaun frá UEFA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland hefur hlotið háttvísisverðlaun UEFA fyrir keppnistímabilið 2025/26 og varð efst allra aðildarþjóða UEFA í heildarstigagjöf sambandsins fyrir háttvísi og háttsemi í leikjum á vegum UEFA.

Háttvísimat UEFA nær til allra leikja í keppnum sambandsins, bæði hjá landsliðum og félagsliðum. Fyrir tímabilið 2025/26 voru metnir leikir sem fóru fram frá 1. júlí 2025 til 30. júní 2026 og þurfti hvert knattspyrnusamband að hafa tekið þátt í að minnsta kosti 50 leikjum á tímabilinu til þess að koma til greina í heildarmatinu.

Ísland varð efst í heildarmatinu með 8,533 stig. Árangurinn byggir því á frammistöðu íslenskra liða í keppnum UEFA á tímabilinu, bæði landsliða Íslands og íslenskra félagsliða.
Háttvísimatið snýr ekki eingöngu að fjölda gulra og rauðra spjalda. Í mati UEFA er horft heildstætt til háttsemi í kringum leiki og þeirra viðmiða sem sambandið leggur til grundvallar í háttvísimati sínu. Niðurstaðan endurspeglar þannig framkomu og háttvísi í leikjum íslenskra liða á vettvangi UEFA á tímabilinu.

Árangur Íslands er jafnframt töluverð bæting frá fyrra keppnistímabili. Háttvísi-einkunn Íslands hækkaði um 0,263 stig milli ára, sem var næstmesta bæting allra sambanda. Aðeins Albanía bætti stöðu sína meira, um 0,286 stig.

UEFA veitir háttvísisverðlaun í þremur flokkum. Ísland fékk verðlaunin fyrir bestan heildarárangur, Albanía fyrir mestu bætingu frá fyrra tímabili og Wales fyrir besta árangur þegar kemur að framkomu stuðningsfólks. Wales fékk 9,125 stig í þeim flokki.

Í tengslum við háttvísisverðlaunin fær KSÍ 50.000 evrur frá UEFA. Fjármununum skal verja til verkefna hjá sem stuðla að háttvísi og virðingu innan knattspyrnunnar.

Viðurkenningin nær þannig til íslenskrar knattspyrnu í heild og er ánægjulegur vitnisburður um framkomu íslenskra liða í Evrópukeppnum á tímabilinu 2025/26.

Heimild: ksi.is

Ísland hlýtur háttvísisverðlaun frá UEFA
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Frá höfuðstöðvum UEFA í Nyon.

Frá höfuðstöðvum UEFA í Nyon.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.