18.11.26 - 16:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir uppaldir skrifa undir hjá Þrótti

Stefán Þórður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Villi Kaldal

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Þórður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur greinir frá því í dag að tveir uppaldir Þróttarar væru búnir að skrifa undir nýja samninga við félagið. Stefán Þórður Stefánsson var með lausan samning og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson skrifaði einnig undir nýjan samning.
Stefán Þórður er fæddur 2002, hann er tvíburabróðir fyrirliðans Baldurs Hannesar. Vinstri bakvörðurinn kom við sögu í tólf leikjum í Lengjudeildinni og öllum þremur leikjunum í umspilinu þegar Þróttur tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Hann hefur allan sinn feril verið hjá Þrótti.

Vilhjálmur er fæddur 1998 og hefur einnig leikið með venslaliðinu SR, Tindastóli og KV á sínum ferli. Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem átti eitt ár eftir af sínum samningi. Í sumar kom hann við sögu í 20 leikjum í Lengjudeildinni og öllum þremur umspilsleikjunum.
„Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir okkur og munu þeir vera klárir í slaginn gegn Haukum á laugardaginn og svo í Bestu Deildinni næsta sumar!" segir í tilkynningu Þróttar.
Þróttur
Komnir
Farnir
Aron Dagur Birnuson í Stjörnuna (var á láni)
Magnús Þórðarson (var á láni frá Fram)
Samningslausir
Njörður Þórhallsson
Birgir Halldórsson
Benóný Haraldsson