18.11.26 - 13:45
Elvar Geir Magnússon
Heimir segir lætin í kringum Ísraelsleikina hafa styrkt hópinn

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Írlands.

Mynd: EPA

Heimir gekk í gegnum hluti sem ekkert þjálfaranámskeið getur búið þig undir.

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, segir að deilurnar í kringum leikina gegn Ísrael í Þjóðadeildinni hafi gert hópinn sterkari.
Á Írlandi var kallað eftir því að Írar myndu ekki spila gegn Ísrael í síðasta glugga og úr varð mikið fár. Báðir leikirnir voru á hlutlausum völlum. Írland vann fyrri leikinn 3-0 í Ungverjalandi áður en liðin gerði 1-1 jafntefli í Serbíu.

TENGT EFNI
Sjáðu þegar það sauð upp úr á fréttamannafundi Heimis
Ýmislegt gekk á í kringum leikina, mótmæli áttu sér stað, upp úr sauð á fréttamannafundi og stjórnmálamenn stigu fram. Hópurinn kaus um það innbyrðis hvort þeir ættu að spila leikina og markvörðurinn Gavin Bazunu dró sig úr hópnum. Heimir segir að hópurinn sé orðinn þéttari eftir að hafa gengið í gegnum þetta saman.
„Þetta reyndi á alla, líkamlega og andlega. Ég hef lært mikið og leikmennirnir hafa lært mikið og vaxið,“ sagði Heimir eftir 3-0 sigur gegn Kósovó í gær þar sem Írland tryggði sér umspilssæti um að komast upp í A-deild Þjóðadeildarinnar.
Hallgrímsson talaði eftir að lið hans sigraði 10 manna Kósóvó 3-0 í Dublin á þriðjudagskvöldið og endaði í öðru sæti á eftir Austurríki í B3. riðli.
„Ég er nokkuð viss um að eftir eitt til tvö ár, þegar þetta lið mun uppskera, munum við líta til baka og segja að þetta hafi verið vendipunktur fyrir okkur. Ég er nokkuð viss um að við munum líta til baka og segja að þetta hafi haft mikil áhrif. Leiðtogar búa oft til hugarfar á þá leið að við séum tilbúnir til að berjast gegn heiminum fá hópinn til að standa saman. Við fengum þetta umhverfi í tvær eða þrjár vikur, komumst í gegnum það og hópurinn varð sterkari," segir Heimir, sem gekk í gegnum hluti sem ekkert þjálfaranámskeið getur búið þig undir.