Fotbolti.net
18.11.26 - 09:31
Elvar Geir Magnússon

Arnar Gunnlaugs stoltur af Aroni - „Snjöll ráðning“

Aron á hliðarlínunni með Arnari Gunnlaugssyni 2024.

Aron á hliðarlínunni með Arnari Gunnlaugssyni 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Aron Baldvin Þórðarson tók á dögunum við þjálfun Fylkis í Lengjudeildinni. Aron, sem er 31 árs gamall, var aðstoðarþjálfari Víkings og hefur verið í þjálfarateyminu undanfarin ár.

Hann kom inn í þjálfarateymi meistaraflokks Víkings þegar Arnar Gunnlaugsson, núverandi landsliðsþjálfari, var með liðið. Aron talar um Arnar sem læriföður sinn.
Draumur að taka við uppeldisfélaginu - „Horfi á Arnar sem læriföður minn“
TENGT EFNI

Draumur að taka við uppeldisfélaginu - „Horfi á Arnar sem læriföður minn“

„Ég er mjög stoltur af honum. Hann á þetta skilið og er tilbúinn," sagði Arnar þegar hann var spurður út í ráðningu Fylkismanna.

„Hann er búinn að fá góðan skóla hjá Víkingum og ég held að þetta sé frábær ráðning hjá Fylki. Snjöll ráðning að fá þjálfara sem kemur með hugmyndafræði Víkings, prentar hana út og afhendir Fylki. Ég held að það sé mjög gott mál."

„Svo kemur hitt bara með tímanum. Hann verður ekkert fullmótaður á fyrstu mánuðunum af því að það er ýmislegt tilfinningalegt sem spilar inn í. Ég þekki það sjálfur að vera á hliðarlínunni er aðeins öðruvísi, þurfa að taka ákvarðanir á 10 sekúndubrotum. Það er eitthvað sem kemur. Hann er gríðarlega öflugur þjálfari og ég vænti mikils af honum," segir Arnar Gunnlaugsson.

Byrjar að elska þá hugmyndafræði
Þegar Aron var kynntur hjá Fylki tjáði hann sig um þróun sína í Víkinni.

„Þegar ég kem inn í teymið hjá Arnari Gunnlaugs í Víkinni fæ ég að sjá fótboltann úr allt öðru sjónarhorni en ég var vanur. Ég byrja að elska þá hugmyndafræði og hef mótað hana og þróað á minn hátt,“ sagði Aron og var í kjölfarið spurður út í fótboltann sem búast má við að sjá í Árbænum á næsta tímabili.

„Þjálfaraskólinn minn er svolítið úr Víkinni. Ég horfi svolítið á Arnar Gunnlaugs sem læriföður minn. Síðan þróuðu Sölvi og Viktor Bjarki það áfram síðustu tvö ár. Undir stjórn Sölva gerðum við mjög vel. Þetta snýst um að vera góður á öllum sviðum leiksins. Á móti hvaða andstæðingi sem er er þér alltaf þrýst niður, þarft að sækja og verjast úr föstum leikatriðum, vera með góðan strúktúr. Markmið okkar fyrir hvern og einn leik er að spila hann á okkar forsendum, að við séum liðið sem stýrir leiknum frá A til Ö.“
Aron Baldvin Þórðarson.

Aron Baldvin Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.