Fotbolti.net
18.11.26 - 16:01
Elvar Geir Magnússon

Réttað yfir Toney á meðan EM verður í gangi

Enski landsliðsmaðurinn Ivan Toney.

Enski landsliðsmaðurinn Ivan Toney.

Canon

Mynd: EPA

Enska sóknarmanninum Ivan Toney var synjað um beiðni um að færa dagsetningu á réttarhöldum yfir sér til að forðast árekstur við EM 2028.

Toney var ákærður fyrir að ráðast á mann á næturklúbbi í Soho hverfinu í Lundúnum þann 6. desember.

Toney hefur neitað sök í dómssal en dagsetningin fyrir réttarhöldin, sem gætu staðið í nokkra daga, var ákveðin 12. júní. Það er þremur dögum eftir að EM hefst.

Auðvitað er alls ekki víst að Toney verði í EM hópnum en hann var í hópnum á HM í sumar og hefur spilað tíu landsleiki. Hann bað um að réttarhöldin yrðu færð en því var hafnað.

„Mér finnst það ekki vera í þágu réttlætis að breyta þeirri dagsetningu sem þegar var ákveðin," sagði dómarinn Tony Baumgartner en bætti við að hægt væri að leggja umsóknina fram aftur ef Toney yrði valinn í enska landsliðshópinn.
Toney neitar að hafa ráðist á mann á djamminu
TENGT EFNI

Toney neitar að hafa ráðist á mann á djamminu

Toney er þrítugur og hefur spilað tíu landsleiki fyrir England. Hann var hluti af hópnum sem komst í úrslitaleik EM 2024. Hann var ekki í enska landsliðshópnum í liðnum Þjóðadeildarglugga. Hann spilar nú fyrir Al-Ahli í Sádi-Arabíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.