Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 05. apríl 2021 21:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neto og Lingard lenti saman eftir leik - „Af hverju spilaru svona?"
Eftir leik
Eftir leik
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard skoraði, lagði upp og átti stóran þátt í marki gegn Wolves í dag. West Ham vann 2-3 útisigur. Lingard, Pablo Fornals og Jarrod Bowen skoruðu mörk Hamranna en þeir Leander Dendoncker og Fabio Silva skoruðu mörk Úlfanna.

Eftir leik lenti Pedro Neto og Jesse Lingard saman og hópuðust leikmenn í kringum þá. Neto var ósáttur út í Lingard og var Lingard spurður út í þetta í viðtali.

„Hann sagði: 'Af hverju spilaru svona?' og ég svaraði: 'Ég skil ekki hvað þú átt við'."

„Hann var örugglega að tala um þegar við fórum með boltann upp að hornfána. Það snerist um að stjórna leiknum og svona hluti þurfum við að læra að gera,"
sagði Lingard.

Myndskeið af atvikinu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner