21.09.26 - 08:39
Elvar Geir Magnússon
Rob Holding fékk mark í afmælisgjöf frá Sveindísi

Rob Holding var stuðningsmaður íslenska kvennalandsliðsins á EM.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rob Holding var stuðningsmaður íslenska kvennalandsliðsins á EM.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Takk fyrir afmælismarkið," skrifaði enski miðvörðurinn Rob Holding til kærustu sinnar, Sveindísar Jane Jónsdóttur, á Instagram.
Sveindís skoraði eitt af mörkum Angel City sem vann 3-0 sigur á Utah Royals. Angel City er í 6. sæti bandarísku kvennadeildarinnar með 39 stig eftir 25 umferðir.
Sveindís skoraði eitt af mörkum Angel City sem vann 3-0 sigur á Utah Royals. Angel City er í 6. sæti bandarísku kvennadeildarinnar með 39 stig eftir 25 umferðir.

TENGT EFNI
Sveindís innsiglaði sigurinn gegn níu leikmönnum Utah
Holding, sem er fyrrum leikmaður Arsenal, spilar með Colorado Rapids í Bandaríkjunum en hann fagnaði 30 ára afmæli sínu í gær.
Þegar Sveindís skoraði markið sneri hún sér að myndavél og gaf hjartamerki með höndunum.
Þegar Sveindís skoraði markið sneri hún sér að myndavél og gaf hjartamerki með höndunum.
Ice(land) in her veins ???? pic.twitter.com/oEjDAQkLLl
— Angel City FC (@weareangelcity) September 21, 2026

Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
