Fotbolti.net
05.05.21 - 22:16
Sverrir Örn Einarsson

Hólmfríður: Er bara svo góð lykt af grasinu á Selfossi

Hólmfríður Magnúsdóttir

Hólmfríður Magnúsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Tilfinningin er mjög góð. Þetta var góður útisigur hérna og að halda hreinu og bara frábært að komast á grasið og spila.“
Sagði Hólmfríður Magnúsdóttir reynsluboltinn í liði Selfoss um tilfinninguna eftir 0-3 úti sigur Selfyssinga á liði Keflavíkur fyrr í kvöld.
Hólmfríður tilkynnti eftir að tímabili hennar í Noregi lauk síðastliðið haust að hún væri hætt. Sú ákvörðun stóð þó ekki lengi og fyrir skömmu var það tilkynnt að hún ætlaði sér að spila með liði Selfoss í sumar. Hvað varð til þess að hún skipti um skoðun?

„Það er bara svo góð lykt af grasinu á Selfossi og þetta er bara svo gaman og stemming í kringum liðið. Ég fékk enga pressu að byrja aftur en byrjaði að mæta á eina æfingu eftir páskafrí og tók svo ákvörðun fyrir 10 dögum að byrja að spila aftur.“

Hólmfríður lék alls í 87 mínútur í dag og virkar í hörkuformi og blés varla úr nös.

„Jú ég held ég þurfi að gera þetta eins og 2019 og spila mig í form. Ég hef ekkert verið að æfa nema bara sjálf inni í bílskúr heima en þetta kemur. En ég er bara mjög ánægð líka með liðið í dag. Þetta var algjör liðsheildarsigur og var erfiður leikur. og Keflavíkurstelpurnar gáfu ekkert eftir. “

Sagði Hólmfríður en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.