Fotbolti.net
05.05.21 - 20:27
Ívan Guðjón Baldursson

Man Utd mætir Liverpool 13. maí - Þrír leikir á fimm dögum

Man Utd mætir Liverpool 13. maí - Þrír leikir á fimm dögum
Canon

Mynd: Getty Images

Stórleikur Manchester United gegn Liverpool sem átti að fara fram um helgina verður spilaður fimmtudaginn 13. maí.
Leikurinn fór ekki fram vegna mótmæla stuðningsmanna Man Utd fyrir utan Old Trafford. Stuðningsmönnunum tókst að ryðja sér leið inn á völlinn og í búningsklefa en leikmenn voru ekki á svæðinu vegna ástandsins.

Stuðningsmenn Rauðu djöflanna mættu á völlinn til að mótmæla eignarhaldi Glazer fjölskyldunnar á félaginu og tókst að láta fresta stórleiknum.

Þá var einnig fært leik Man Utd gegn Leicester á 11. maí sem þýðir að lærisveinar Ole Gunnar Solskjær munu spila tvo úrvalsdeildarleiki með 50 klukkustunda millibili í næstu viku. Ekki nóg með það því tveimur dögum fyrr eiga Rauðu djöflarnir leik við Aston Villa. Þetta eru því þrír leikir í heildina á fimm dögum.

Þá er ekki verið að telja undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fer fram annað kvöld, þremur dögum fyrir leikinn gegn Villa.

Leikjaplan Rauðu djöflanna út tímabilið:
6. maí Roma - Man Utd (2-6)
9. maí Aston Villa - Man Utd
11. maí Man Utd - Leicester
13. maí Man Utd - Liverpool
18. maí Man Utd - Fulham
23. maí Wolves - Man Utd
26. maí Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.