Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Alisson efstur á lista Juve - Emery á blaði hjá Real Madrid
Powerade
Alisson, markvörður Liverpool.
Alisson, markvörður Liverpool.
Mynd: EPA
Foden gerir nýjan samning við City.
Foden gerir nýjan samning við City.
Mynd: EPA
Arsenal og Atletico Madrid mætast í seinni viðureign sinni í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en staðan í einvíginu er 1-1 eftir fyrri leikinn. En meðan við bíðum eftir leiknum skulum við skoða slúðurpakka dagsins.

Ítalska félagið Juventus er með Alisson (33), markvörð Liverpool, efstan á óskalista sínum fyrir sumarið. Brasilíumaðurinn er á leið í lokaár samnings síns á Anfield. (Sky Sports)

Real Madrid er með Unai Emery, stjóra Aston Villa, á blaði yfir mögulega stjóra en hann er samningsbundinn enska félaginu til sumarsins 2029. (TalkSport)

Phil Foden (25) hefur gert samkomulag við Manchester City um nýjan fjögurra ára samning. Foden hefur verið í brasi á þessu tímabili og ekki skorað síðan 17. desember. (BBC)

Manchester United hefur áhuga á portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes (21) en búist er við því að hann yfirgefi West Ham ef félagið fellur úr ensku úrvalsdeildinni. (Telegraph)

Manchester United vill selja úrúgvæska miðjumanninn Manuel Ugarte (25) en hann hefur bara byrjað einn deildarleik síðan Michael Carrick tók við í janúar. (Sun)

Manchester United er tilbúið að eyða um 150 milljónum punda í að kaupa þrjá miðjumenn í sumar. (Mail)

Brentford er á eftir austurríska varnarmanninum Jannik Schuster (19) hjá Red Bull Salzburg en viðræður eru í gangi um kaup fyrir um 16 milljónir punda. (Mail)

Inter hefur virkjað 13 milljóna punda ákvæði til að kaupa svissneska varnarmanninn Manuel Akanji (20) frá Manchester City. Akanji kom til Inter á láni síðasta sumar en liðið hefur tryggt sér ítalska meistaratitilinn. (Fabrizio Romano)

Liverpool og Arsenal eru meðal úrvalsdeildarfélaga sem fylgjast með franska sóknarleikmanninum Bradley Barcola (23) hjá Paris St-Germain. (Teamtalk)

Chelsea hefur áhuga á ekvadorska varnarmanninum Joel Ordonez (22) hjá Club Brugge en hann var orðaður við 43 milljóna punda sölu til Liverpool í janúar. (Teamtalk)

Inter hefur varað Barcelona við því að gera tilboð í ítalska varnarmanninn Alessandro Bastoni (27) eftir að hafa tryggt sér Ítalíumeistaratitilinn. (ESPN)
Slapp
banner
banner
banner