Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Arsenal og Atlético: Gerir fimm breytingar frá fyrri leiknum
Zubimendi einn af fimm sem eru bekkjaðir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal og Atlético Madrid eigast við í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Mikel Arteta gerir fimm breytingar á liði Arsenal sem heimsótti Madríd fyrir viku síðan og gerði 1-1 jafntefli, þar sem Myles Lewis-Skelly byrjar á miðjunni í stað Martín Zubimendi.

Lewis-Skelly átti stórleik á miðjunni gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni og hefur Arteta fulla trú á táningnum sem er vinstri bakvörður að upplagi.

Riccardo Calafiori kemur inn í varnarlínuna fyrir Piero Hincapié, Eberechi Eze tekur sæti fyrirliðans Martin Ödegaard á miðjunni og þá koma Bukayo Saka og Leandro Trossard inn á kantana fyrir Noni Madueke og Gabriel Martinelli sem setjast á bekkinn.

Diego Simeone gerir aðeins eina breytingu á sínu byrjunarliði þar sem Robin Le Normand kemur inn fyrir Johnny Cardoso.

Sigurvegari kvöldsins mætir annað hvort FC Bayern München eða Paris Saint-Germain í úrslitaleik keppninnar.

Arsenal: Raya, White, Saliba, Gabriel, Calafiori, Lewis-Skelly, Rice, Eze, Saka, Trossard, Gyökeres
Varamenn: Kepa, Setford, Mosquera, Hincapie, Ödegaard, Jesus, Martinelli, Nörgaard, Madueke, Havertz, Zubimendi, Dowman

Atlético: Oblak, Pubill, Hancko, Le Normand, Ruggeri, Simeone, Llorente, Koke, Lookman, Griezmann, Alvarez
Varamenn: Musso, Gimenez, Lenglet, Molina, Bonar, Diaz, Mendoza, Cardoso, Baena, Vargas, Sörloth, Amada
Slapp
banner
banner
banner