Diego Simeone var ekki sammála stærstu dómaraákvörðun kvöldsins í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar lærlingar hans í Atlético Madrid voru slegnir úr leik af Arsenal.
Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins á 44. mínútu og vildu gestirnir frá Madríd fá dæmda vítaspyrnu í seinni hálfleik þegar Giuliano Simeone, sonur Diego, féll til jarðar innan vítateigs eftir viðskipti við Gabriel Magalhaes. Daniel Siebert þýski dómari leiksins dæmdi hornspyrnu en Simeone og liðsfélagar hans vildu víti.
Atvikið var skoðað gaumgæfilega í VAR-herberginu og ekki ákveðið að skerast í leikinn.
„Ég vil ekki tala um dómgæsluna en við vitum allir að þetta var brot. Við héldum allir að hann myndi dæma víti en ég vil ekki tala um þetta. Ég vil ekki búa til afsakanir," sagði Simeone að leikslokum.
„Ef við duttum út þá er það útaf því að andstæðingarnir okkar áttu skilið að fara áfram. Þeir nýttu færið sitt í fyrri hálfleik og verðskulda farmiða í úrslitaleikinn. Mér líður vel, ég er rólegur og friðsæll.
„Við nýttum færin og stöðurnar okkar ekki nægilega vel. Seinni hálfleikurinn var góður hjá strákunum en þeir voru óheppnir að skora ekki. Við lögðum allt í þetta og verðum að samþykkja tapið.
„Ég vil þakka stuðningsmönnum og leikmönnum fyrir. Ég er stoltur að hafa komist alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Við gáfum andstæðingum okkar, sem eru með talsvert sterkari heldur en við efnahagslega séð, alvöru leik en tókst því miður ekki að vinna. Við göngum frá þessari keppni berandi höfuðið hátt."
05.05.2026 20:26
Sjáðu ótrúlegt klúður Simeone - Átti að dæma víti?



