Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   þri 05. maí 2026 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Inter kaupir Akanji af Man City
Akanji er búinn að spila 44 leiki fyrir Inter á tímabilinu.
Akanji er búinn að spila 44 leiki fyrir Inter á tímabilinu.
Mynd: EPA
Inter tryggði sér Ítalíumeistaratitilinn með sigri gegn Parma um helgina og virkjar þannig kaupákvæði í lánssamningi Manuel Akanji.

Akanji lék yfir helming deildarleikja Inter á tímabilinu og tryggði stórveldið sér þriðja Ítalíumeistaratitilinn á síðustu sex árum.

Akanji gerði flotta hluti hjá Inter og festi sig í sessi sem mikilvægur byrjunarliðsmaður í þriggja manna varnarlínu undir stjórn Christian Chivu.

Akanji kom á lánssamningi frá Manchester City í fyrra og borgar Inter 15 milljónir evra til að festa kaup á honum, eftir að hafa borgað 2 milljónir til að fá varnarmanninn lánaðan.

Akanji verður 31 árs í sumar og gildir samningur hans við Inter til sumarsins 2028. Hann lék 136 leiki á þremur árum hjá Man City og vann ensku úrvalsdeildina tvisvar, FA bikarinn tvisvar og Meistaradeildina einu sinni.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 84 31 +53 85
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
4 Juventus 35 18 11 6 58 30 +28 65
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 36 13 12 11 39 36 +3 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 35 3 11 21 24 57 -33 20
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner